Um Hrafnhettu

Hrafnhetta er minn litli sköpunarheimur þar sem náttúran, andleg rækt og sköpunargleði mætast.

Ég hef haft áhuga á andlegum málefnum í mörg ár og árið 2011 hóf ég nám í Heilunarskólanum. Síðan þá hefur áhugi minn á andlegri rækt, sjálfsþekkingu og sköpun farið sívaxandi.

Mér finnst ótrúlega gaman að skapa og sjá hugmyndir mínar verða að veruleika, hvort sem það er í formi bóka, spákorta, límmiða eða handunninna húð- og baðvara.

Ég hef einnig mikinn áhuga á jurtum og eiginleikum þeirra og hef gaman af því að nýta þær í vörurnar mínar.

Með Hrafnhettu langar mig að deila því sem veitir mér sjálfri gleði og innblástur og skapa eitthvað fallegt sem nærir líkama, huga og sál.

Menntun og þekking

Árið 2026 lauk ég námi hjá Formula Botanica og hlaut Diploma in Organic Skincare Formulation.

Námið hefur veitt mér dýpri þekkingu á þróun og samsetningu náttúrulegra húðvara og styrkt áhuga minn á að skapa vandaðar vörur af alúð

Guðbjörg með viðurkenningarskjal frá Formula Botanica

Allt skapað af alúð og ástríðu.

Kær kveðja,
Guðbjörg Hrafnhetta